FX Pocket Chronograph Pro – Doppler hraðamælir
FX Pocket Chronograph Pro er nettur og fjölhæfur Doppler radar hraðamælir fyrir skotmenn sem vilja nákvæmar hraðamælingar ásamt öflugum verkfærum fyrir æfingar og keppni.
Tækið mælir hraða frá 200 upp í 4.500 fps og hentar því bæði loftvopnum og háhraða riffilskotum. Innbyggður 2" TFT litaskjár sýnir mælingarnar beint á tækinu, þannig að ekki þarf síma við venjulega notkun.
Meira en bara hraðamælir
Pocket Chronograph Pro er með sérstaka PRS stillingu sem bætir við verkfærum fyrir æfingar og keppni:
Stage timer
Split-tímar
Hallamælir / level
Cant indicator
Þannig er hægt að fylgjast bæði með skottíma og stöðu riffilsins á meðan æfingu stendur.
Doppler radar
Mælingin byggir á 24 GHz Doppler radar og því þarf ekki að skjóta í gegnum ljósnema eða festa skynjara við hlaupið.
Tækið má nota á litlum þrífæti eða festa við búnað með meðfylgjandi ARCA/Picatinny festingu.
Ballistic upplýsingar
Pocket Chronograph Pro getur, auk hefðbundinnar hraðamælingar, nýtt innbyggða umhverfisskynjara og ballistic virkni.
Fyrir skotfæri með hraða allt að 1.280 fps getur tækið einnig reiknað út Ballistic Coefficient (BC) út frá raunverulegum mælingum.
Þetta getur verið sérstaklega gagnlegt við prófun og stillingu á loftbyssum, subsonic skotfærum og öðrum hægari projectiles.
Tenging við síma
Chronographinn styður Bluetooth og nýja app-línu FX. Þar er hægt að vinna áfram með mælingar, skotseríur og önnur gögn.
FX hefur jafnframt byggt kerfið á opnari hugbúnaðargrunni þannig að fleiri öpp og samþættingar geta bæst við.
Helstu eiginleikar
Doppler radar hraðamæling
Hraðasvið: 200–4.500 fps
2" TFT litaskjár
PRS Mode
Stage timer og split-tímar
Level og cant indicator
BC mæling allt að 1.280 fps
Innbyggðir umhverfisskynjarar
Bluetooth
USB-C
ARCA/Picatinny festing
Lítið þrífótastand
Nett og létt hönnun
Í kassanum
FX Pocket Chronograph Pro kemur í hlífðartösku ásamt festingu fyrir riffil og litlu þrífæti, þannig að tækið er tilbúið til notkunar bæði á skotsvæði og úti á vettvangi.
FX Pocket Chronograph Pro sameinar nákvæman Doppler hraðamæli og gagnleg æfingatæki í einu litlu tæki – hvort sem markmiðið er að mæla hleðslur, stilla búnað eða æfa fyrir PRS.