Vörulýsing
Þessi Frankford Intellidropper 2.0 vog og skammtari gerir gallalausar og nákvæmar púðurmælingar auðveldar. Með þessari vog og skammtara er mögulegt að mæla púður mjög hratt, allt að 250 grain með ± 0,1 grain nákvæmni. Frankford Arsenal segir Intellidropper 2.0 vera nálega tvöfalt hraðvirkari en hefðbundinn skammtara. Glæra forðabúrið rúmar allt að 7000 grain, sem eru um 1 pund (um 450 grömm).
Snertiskjárinn gerir skammtarann einfaldan í notkun. Hann er einnig með Bluetooth til að tengjast snjallsíma eða spjaldtölvu í gegnum ókeypis app frá Frankford Arsenal. Appið raðar gögnum í flokka og vistar þau til að hafa fljótt aðgengileg, sem gerir hraðar og nákvæmar púðurhleðslur auðveldar og einfaldar. Þar að auki gerir appið kleift að stjórna Intellidropper 2.0 fjarrænt úr tengdum snjallsíma eða spjaldtölvu.
Einfalt er að hallastilla vogina og skammtarann með fjórum stillanlegum fótum sem hann stendur á.
Eiginleikar Frankford Intellidropper 2.0 vogar og skammtara:
- Hröð og nákvæm mæling púðurhleðslna
- Rúmtak forðabúrs: 7000 grain
- Púðurhleðslur allt að 250 grain
- Stillingar: sjálfvirkt/handvirkt/dropamötun
- Snertiskjár
- Bluetooth til stýringar úr snjallsíma
- Stillanlegir fætur