ONERUGGED H68T – öflug Android handtölva með Zebra strikamerkjalesara
ONERUGGED H68T er sterkbyggð Android 14 handtölva fyrir lager, framleiðslu, verslun, þjónustu og aðra atvinnunotkun þar sem hraður og öruggur lestur strikamerkja skiptir máli.
Tækið er búið Zebra SE4710 1D/2D strikamerkjalesara og tveimur sérstökum skannhnöppum sem gera það þægilegt í stöðugri notkun. H68T hentar sérstaklega vel með lager- og viðskiptakerfum á borð við Odoo Barcode og getur sent skönnuð strikamerki sem lyklaborðsinnslátt beint inn í kerfið.
Öflugur Helio G99 átta kjarna örgjörvi, 8 GB vinnsluminni og 128 GB geymsla tryggja lipra notkun, en 6,56" bjartur snertiskjár hentar vel bæði innandyra og utandyra.
Helstu eiginleikar
Android 14 með Google Mobile Services
Zebra SE4710 1D/2D strikamerkjalesari
Tveir sérstakir skannhnappar
8 GB RAM / 128 GB geymsla
Helio G99 átta kjarna örgjörvi
6,56" snertiskjár
720 × 1612 upplausn
670 nit birta
5800 mAh rafhlaða
33 W hraðhleðsla
4G LTE
Dual-band Wi-Fi
Bluetooth 5.1
NFC
GPS / GLONASS / BeiDou / Galileo
IP68 ryk- og vatnsvörn
Þolir fall úr allt að 1,5 m hæð
Vinnuhitastig frá -20°C til +60°C
USB-C tengi
Dual SIM / microSD stuðningur
48 MP aðalmyndavél og 32 MP frammyndavél
Þyngd um 311 g
Hannað fyrir daglega atvinnunotkun
H68T hentar vel þar sem hefðbundinn sími eða spjaldtölva er ekki nægilega sterkbyggð eða þar sem þörf er á hraðvirkum innbyggðum strikamerkjalesara.
Dæmigerð notkun er meðal annars:
H68T hefur verið prófuð með Odoo Barcode og hentar vel sem handtölva fyrir Odoo Inventory, Barcode og tengd verkferli.
Sterkbyggt tæki, góður skjár og atvinnuflokks Zebra strikamerkjalesari gera H68T að hagkvæmum valkosti fyrir fyrirtæki sem vilja alvöru PDA/handtölvu án þess að fara í dýrari enterprise-tæki.