Skip to Content

ONERugged H68T

ONERUGGED H68T – öflug Android handtölva með Zebra strikamerkjalesara

ONERUGGED H68T er sterkbyggð Android 14 handtölva fyrir lager, framleiðslu, verslun, þjónustu og aðra atvinnunotkun þar sem hraður og öruggur lestur strikamerkja skiptir máli.

Tækið er búið Zebra SE4710 1D/2D strikamerkjalesara og tveimur sérstökum skannhnöppum sem gera það þægilegt í stöðugri notkun. H68T hentar sérstaklega vel með lager- og viðskiptakerfum á borð við Odoo Barcode og getur sent skönnuð strikamerki sem lyklaborðsinnslátt beint inn í kerfið.

Öflugur Helio G99 átta kjarna örgjörvi, 8 GB vinnsluminni og 128 GB geymsla tryggja lipra notkun, en 6,56" bjartur snertiskjár hentar vel bæði innandyra og utandyra.

Helstu eiginleikar

  • Android 14 með Google Mobile Services

  • Zebra SE4710 1D/2D strikamerkjalesari

  • Tveir sérstakir skannhnappar

  • 8 GB RAM / 128 GB geymsla

  • Helio G99 átta kjarna örgjörvi

  • 6,56" snertiskjár

  • 720 × 1612 upplausn

  • 670 nit birta

  • 5800 mAh rafhlaða

  • 33 W hraðhleðsla

  • 4G LTE

  • Dual-band Wi-Fi

  • Bluetooth 5.1

  • NFC

  • GPS / GLONASS / BeiDou / Galileo

  • IP68 ryk- og vatnsvörn

  • Þolir fall úr allt að 1,5 m hæð

  • Vinnuhitastig frá -20°C til +60°C

  • USB-C tengi

  • Dual SIM / microSD stuðningur

  • 48 MP aðalmyndavél og 32 MP frammyndavél

  • Þyngd um 311 g

Hannað fyrir daglega atvinnunotkun

H68T hentar vel þar sem hefðbundinn sími eða spjaldtölva er ekki nægilega sterkbyggð eða þar sem þörf er á hraðvirkum innbyggðum strikamerkjalesara.

Dæmigerð notkun er meðal annars:

  • Lager og vörutínsla

  • Móttaka og afhending vara

  • Framleiðsla

  • Birgðatalning

  • Flutningar og dreifing

  • Vettvangsþjónusta

  • Verslanir og heildsölur

  • Eigna- og tækjaskráning

H68T hefur verið prófuð með Odoo Barcode og hentar vel sem handtölva fyrir Odoo Inventory, Barcode og tengd verkferli.

Sterkbyggt tæki, góður skjár og atvinnuflokks Zebra strikamerkjalesari gera H68T að hagkvæmum valkosti fyrir fyrirtæki sem vilja alvöru PDA/handtölvu án þess að fara í dýrari enterprise-tæki.

120.900 kr 120.900 kr

Terms and Conditions
30-day money-back guarantee
Shipping: 2-3 Business Days