Skilmálar
Almennt
Búval ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum án fyrirvara eða hætta að bjóða upp á vörur fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Greiðsla
Greiðslu getur kaupandi innt af hendi á ýmsa vegu:
Debet- eða kreditkorti: Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.
Millifærsla: Kaupandi þarf að millifærar yfir á reikning Búval ehf. og setja í stuttu skýringuna númer á pöntun. Greiðsla þarf að berast innan við 4 klukkustundum frá kaupum eða þau falla niður.
Afhending vöru
Hægt er að sækja keyptar vörur til Búval ehf. eftir samkomulagi.
Allar pantanir sem berast og eru greiddar fyrir klukkan 13 eru afhentar samdægurs á Íslandspóst ef svo er óskað annars næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Í öllum þeim pöntunum sem dreift er af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu pantana.
Búval ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Búval ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.
Afhendingartími er 2-4 virkir dagar.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum, upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Vörur sem hafa ekki innsigli fæst ekki skilað eða skipt. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með innleggsnótu eða endurgreiðslu á kreditkort. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Þegar varan er móttekin er gengið frá endurgreiðslu.
Vöruverð og lýsingar
Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Búval ehf. sér þann rétt til að hætta við viðskipti ef rangt verð er gefið upp. Eins eru allar lýsingar og myndir af vörum birt með fyrirvara.
Ábyrgð
Ef vara reynist gölluð er vörunni skipt út fyrir sömu vöru. Ekki er hægt að skipta vöru í aðra vöru.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Öryggi
Það er öruggt að versla í vefverslun Búvals ehf.. Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu. Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál.
Meðferð persónuupplýsinga
Notendur Búval.is þurfa að gefa persónuupplýsingar, nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang þegar keyptar eru vörur á vefnum. Ef notandi vill síðar að þessum upplýsingum sé eytt, munum við verða við þeirri ósk, nema að það sé ekki hægt af bókhaldslegum eða lagalegum ástæðum. Þessar upplýsingar eru eingöngu aðgengilegar starfsmönnum Búvals ehf. og upplýsingarnar eru einungis notaðar til að afgreiða pöntun sem hefur verið gerð og sinna málum er koma upp varðandi hana.
Þegar greiðsla fer fram í gegn um buval.is eru greiðsluupplýsingar skráðar á öruggu vefsvæði Valitor eða í gegnum þinn persónulega heimabanka sem tryggir að greiðsluupplýsingar þínar eru óaðgengilegar fyrir óviðkomandi.
Búval ehf. skuldbindur sig til að afhenda ekki, selja eða gefa upplýsingar sem þú lætur af hendi vegna viðskipta okkar aðgengilegar til þriðja aðila.
IP tala þín er skráð við greiðslu pöntunar. Þær upplýsingar ásamt persónuupplýsingum og upplýsingum um vörukaup gætu verið notaðar í tengslum við lögreglurannsókn vakni grunur um sviksemi eða misnotkun greiðslukorta.
Vefkökur
Vefkökur (cookies) frá fyrsta aðila eru notaðar á ýmsum hlutum vefsins og í ýmsum tilgangi. Þær geta t.d. verið notaðar til að fylgja slóð tiltekins notenda gegnum vefinn, vista stillingar sem hann hefur valið eða halda utan um hvaða vörur hann hefur séð. Buval.is notar einnig vefkökur til að greina umferð um vefsvæðið til að bæta upplifun notenda.
Vefkökur eru ekki tengdar við persónuupplýsingar, nema í þeim tilvikum sem nefnd eru hér að ofan. Persónuupplýsingar eru aldrei vistaðar í vefkökunum sjálfum. Persónuupplýsingar notenda eru aldrei framseldar til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi nema að undangengnum dómsúrskurði.
Vefkökur sem tilheyra þriðja aðila (Google og Facebook) eru notaðar á buval.is m.a. til þess greina notkun vefsvæðisins hvað varðar fjölda notenda og hegðun þeirra þar. Hægt er að nálgast upplýsingar um hvernig þessir aðilar nota vefkökur á vefsíðum þeirra.
Með því að halda áfram á vefsíðu Búval samþykkir þú þessa skilmála.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Aðrar upplýsingar
Netfang: https://buval@buval.is/
Heimilisfang: Berghólar 12
Kt: 420704-3210
Banka upplýsingar: 357-26-000977
Búval ehf. áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu Búval telst nægileg tilkynning.